
Tilbúin lesgleraugu.
Vanda þarf valið þegar kemur að tilbúnum lesgleraugum. Gleraugun eru til í mörgum verðflokkum og gæðaflokkum. Aðalega þarf að hugsa um glerin. Hægt er að lenda á lesgleraugum með mikilli bjögun og er það alls ekki gott fyrir augun. Flestar gleraugnaverslanir selja tilbúin lesgleraugu og eru þau yfirleitt með betri glerjum en gengur og gerist annarsstaðar. Gleraugna Gallerí á breitt úrval af góðum lesgleraugum. Styrkir eru frá +1,00-+3,50. Hægt er að fá þau í málmi og plasti o